Jæja, nú aldeilis gleymdi ég mér yfir hátíðarnar og hef ekkert bloggað. En nú skal bætt úr því.
Ég kláraði síðasta prófið 19. desember og mikið var nú gott þegar það var búið og ég gat farið í jólastússið. Ég fékk einkunnirnar eftir áramótin og fékk 8 á línuna, er bara sátt með það.
Stelpurnar fóru norður með pabba sínum 22. desember svo það var fámennt hjá okkur á aðfangadag. Systir Egils og fjölskylda komu í möndlugraut um hádegisbil og ég var svo dónaleg að hirða möndlugjöfina sjálf

Mamma kom um kvöldið og borðaði hjá okkur. Við fórum í kirkju kl. 18 og stubbur var bara þægur enda var hann með fullt box af kornfleksi til að maula á. Hann sofnaði hins vegar á leiðinni heim og var svo úrillur þegar hann vaknaði að hann vildi ekkert borða af jólamatnum. Litli maðurinn fékk svo marga pakka að hann hafði ekki úthald í þá alla á aðfangadagskvöld svo við geymdum nokkra þar til á jóladag.
Á jóladag fórum við í hið árlega jólaboð hjá systur pabba og þar var að venju sungið og spilað af hjartans lyst. Á annan í jólum kíktum við í sumarbústað með Sirrý vinkonu og hennar manni og gistum eina nótt. VIð borðuðum dýrindis lax sem húsmóðirin hafði sjálf fangað og drukkum svo mojito í heita pottinum fram eftir nóttu meðan stúfur litli svaf eins og engill. Við fórum svo í göngutúr niður að Reykjadalsá í indælisveðri daginn eftir áður en við héldum heim.
Þann 30. desember fengum við María Gyða svo góða gesti. Það voru 5 jafnaldrar hennar ásamt mæðrum sínum. Við mömmurnar kynntumst á fæðingardeildinni þegar þau fæddust fyrir 15 árum síðan svo þau eru öll, fjórir strákar og tvær stelpur fædd um miðjan desember 1993. Við höfum ekki hist núna í nokkur ár svo það urðu fagnaðarfundir.

Um áramótin ákváðum við að vera bara heima fjölskyldan og taka það rólega. Við höfðum það mjög gott, borðuðum lambahrygg og heimatilbúinn ís. Skutum svo upp og rétt eftir miðnættið skreið ég upp í rúm með alla ungana með mér og sofnaði eins og steinn á meðan þau horfðu á Spiderman.
Nýársdagur var letidagur hjá okkur þremur en stelpurnar fóru í afmæli til frænku sinnar.
Það var erfitt fyrir stubb að fara aftur í leikskólann eftir langt hlé og erfitt fyrir mömmuna að reyna að snúa svefninum hjá honum aftur við eftir mikla óreglu yfir hátíðarnar. En þetta er nú allt að takast.
Ég er farin að huga að meistararitgerðinni minni og reyna að afmarka mig við eitthvert efni, það gengur svona mátulega vel.
Áttum semsagt góð jól og áramót og lítum björtum augum til ársins 2009.
Kveðja, Dísa og fjölskylda